Atlantic Quintet 2026 - BJJ Tournament in Akureyri 2026

Atlantic Quintet 2026

Akureyri, Iceland

Description

NOGI quintet glímumót á Akureyri – 18 ára og eldri! Stemmingsmót haldið laugardaginn 15. ágúst í húsakynnum Atlantic.

Mótsgjald: 2.990 kr. – Greitt í gegnum Sportabler - https://www.abler.io/shop/bjjatlantic

Sá fyrsti sem skráir sig úr hverju liði þarf að búa til liðið við skráningu og sjá um að borga fyrir liðið. Aðrir meðlimir þurfa svo að skrá sig í sama lið.

Ef klúbbur mun senda lið í bæði karla og kvenna flokki undir sama nafni er mikilvægt að tilgreina það í nafninu með viðskeyti, dæmi:

👉 10th planet - Karlar

👉 10th planet - Konur 

Það má alveg færa í stílinn og nota til dæmis

👉 10th planet - Einherjar

👉 10th planet - Valkyrjur

Reglur:

🥋 Hvert lið hefur 5 keppendur + Þjálfari (þjálfari má keppa með)

🥋18 ára aldurstakmark 

🥋 Þjálfari stillir upp keppnisröð fyrir hverja bardagaröð. Fyrsti keppandi úr liði A mætir fyrsta keppanda úr liði B. Sigurvegarinn er áfram á mottunni og mætir strax næsta keppanda úr hinu liðinu. Þetta heldur áfram þangað til að annað liðið á enga keppendur eftir.

🥋 Það lið sem klárar sína keppendur fyrst tapar og liðið sem enn á keppendur vinnur.

🥋 Ef bæði lið missa síðustu keppendur sína og enginn er eftir (jafntefli etc.) þá er gripið til bráðabana.

Sigurskilyrði

🥋 Það er einungis hægt að sigra með uppgjafartaki

🥋 Tapp, munnlegt tapp, dómaraákvörðun eða augljós vangeta annars keppandans til að halda áfram telst sem uppgjöf.

🥋 Engin stig, engin advantages eða disadvantages.

Tímalengd og framvinda

🥋 Hver glíma tekur 4 mínútur.

🥋 Ef enginn nær uppgjafartaki innan þessa tímaramma þá er jafntefli og báðir keppendur eru dæmdir úr leik.

Jafntefli

🥋 Ef tíminn klárast án uppgjafartaks þá er jafntefli og báðir keppendur eru úr leik.

Þyngdartakmörk

🥋 Hvert lið hefur heildarþyngdarmörk sem hægt er að deila niður á keppendurna í liðinu.

🥋 Karlar: Heildarþyngd liðs er 420 kg (meðalþyngd 84 kg)

🥋 Konur: Heildarþyngd liðs er 350 kg (meðalþyngd 70 kg)

Einungis eitt svart belti er leyfilegt innan hvers liðs.

Einstök svört belti innan hvers liðs mega ekki vera þyngstu keppendur innan síns liðs.

Keppnisreglur

Öll uppgjafartök eru leyfð en eftirfarandi er bannað:

❌ Slamm

❌ Skæra takedowns

❌ Hoppa í guard 

Einnig er bannað að grípa í einstaka fingur eða tær, grípa þarf að lágmarki um 3 eða fleiri fingur/tær svo takið sé löglegt.

Glímuframvinda

🥋 Allar glímur byrja standandi.

🥋 Dómarinn ræður en hefur leyfi til að ráðfæra sig við aðstoðar- og borðdómara ef vafamál kemur upp.

🥋 Dómari má gefa tvær viðvaranir fyrir tafir og biðja keppendur um að byrja aftur standandi eða í annari hlutlausri stellingu ef ekki er tekið tillit til viðvarana.

Leyfilegt er að nota vegginn.

Dæmi um tafir:

👎 Halda closed guard og gera ekki tilraun til að vinna úr stöðunni

👎 Hörfa í sífellu

👎 Pulla guard og reyna ekki að sækja úr stöðunni

👎 Hanga í half-guard

Bráðabani

🥋 Einn keppandi úr hvoru liði er valinn af þjálfara og sá hinn sami mun taka þátt í 2 mínútna back control lotu.

🥋 Hver byrjar er ákveðið með hlutkesti.

🥋 Annar keppandinn byrjar með back control með króka inni og fær 2 mínútur til að ná uppgjafartaki. Svo fær hinn keppandinn að gera.

🥋 Sá keppandi sem klárar hraðar vinnur.

🥋 Ef hvorugur keppandi klárar á þessum 2 mínútum þá er gripið til dómaraákvörðunar.

🥋 Dómari tekur tillit til eftirfarandi:

👍 Vilji til að sækja

👍 Skemmtanagildi glímustíls

Dagskrá:

🕘 Húsið opnar kl. 9:00

⚖️ Vigtun til 9:45

📋 Dómarafundur kl. 9:45

🥊 Mótið hefst kl. 10:00

Nánari dagskrá auglýst síðar.

Divisions

  • Karlar2900 ISK
  • Konur2900 ISK
See more BJJ tournaments in Akureyri